Framkvæmdasýslan Ríkiseignir hefur auglýst eftir tilboðum í framkvæmd við útsýnispalla 3, 4 og 5 við Dynjanda. Aðstaða ferðafólks við fossinn tók stórstígum framförum á árabilinu 2016-2020. Nýr göngustígur var lagður að útsýnispöllum við Göngumannafoss og Hrísvaðsfoss. Þá voru ný bílastæði byggð og aðstöðu fyrir landverði og gesti komið fyrir.
Hönnuðir útsýnispalla, bílastæða og göngustíga er Landform landslagsarkitektar á Selfossi, en Arkís hannaði byggingar á svæðinu.
Framkvæmdin nú er í beinu framhaldi af því sem áður var gert. Haldið verður áfram með göngustíg upp að sjálfum Dynjanda og þremur nýjum útsýnispöllum úr stáli komið haganlega fyrir, til að bæta útsýni yfir þessi náttúruundur. Útsýnispallarnir verða við Strompgljúfursfoss og Hæstahjallafoss. Auk þess að bæta útsýni, eykur nýja aðstaðan öryggi gesta á staðnum.
Nú er auglýst eftir framkvæmdaaðila til að annast framkvæmdirnar. Markmið FSRE er að framkvæmdum á svæðinu verði lokið í október næstkomandi. Er það þó háð því að haustveðrið á sunnanverðum Vestfjörðum verði milt.
Tilboð verða opnuð 15. júní n.k.
Helstu magntölur:
- Frágangur yfirborðs 280 m2
- Uppgröftur og fyllingar 140 m3
- Stálvirki útsýnispalla og handriða. 5630 kg
Tölvugert myndband af hönnun útsýnispalla og göngustígs má sjá hér að neðan.
Dynjandi from Landform on Vimeo.