Hreinni Hornstrandir – skráning hafin

Skráning í ruslahreinsun á Hornströndum 2023 hafin.

Tíundu hreinsunarferð Hreinni Hornstranda verður farinn dagana 23.-24. júní en að þessu sinni verður farið í Bolungavík en þar var síðast hreinsað árið 2018. Siglt verður frá Ísafirði snemma á föstudagsmorguninn 23. júní og hreinsað þann dag áður en lagst verður í hvílu á Jónsmessu. Laugardaginn 24. júní verður haldið áfram að hreinsa og flytja ruslið um borð í varðskip áður en siglt verður heim á leið og gætt sér á grillveislu. Áætluð er koma á Ísafjörð um kvöldið.

Sem fyrr er leitað að öflugum sjálfboðaliðum sem eru til í hörku vinnu á einu fallegasta svæði landsins. Aðeins eru í boði 25 sæti í ferðina og því ljóst að ekki komast allir að sem vilja en sem flestir eru hvattir til þess að sækja um á netfangið upplysingafulltrui@isafjordur.is.

DEILA