Almenn starfshæfni – Raunfærnimat

Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður upp á námskeið og raunfærnimat í almennri starfshæfni. Hér er átt við þá hæfni (leikni, viðhorf og breytni) sem einstaklingur þarf að búa yfir eða tileinka sér til þess að taka á virkan hátt þátt í samfélaginu, vera á vinnumarkaði, þróast í starfi og geta tekið á sig meira krefjandi störf.

Ávinningur: Hjálpar við undirbúning fyrir velgengni á vinnumarkaði með því að draga fram styrkleika; fá tækifæri til að styrkja þá þætti sem upp á vantar; bera styrkleika saman við kröfur í ákveðnum störfum.

Raunfærnimatið hentar vel fólki sem er á krossgötum, er leitandi eða er að velta fyrir sér nýju starfi. Hentar einnig fólki í starfsendurhæfingu sem t.d. hefur orðið fyrir kulnun, því þátttakendur læra inn á eigin styrkleika og veikleika og fá nýja sýn á sjálfa sig.

Raunfærnimat er fyrst og fremst ætlað fólki sem ekki hefur lokið framhaldsskóla og er frítt fyrir þann hóp. Aðrir geta farið í raunfærnimat en þurfa þá að greiða fyrir. 

DEILA