Karl Sigurðsson er 105 ára í dag

Karl Sigurðsson á Ísafirði er 105 ára í dag 14. maí, og er elstur núlifandi karla. Enginn karl á Vestfjörðum hefur náð hærri aldri og aðeins ein kona, Torfhildur Torfadóttir, sem varð 107 ára.

Karl var skipstjóri í Hnífsdal, lengst á Mími. Var á sjó fram undir fimmtugt. Síðan var hann vélstjóri í hraðfrystihúsinu í Hnífsdal til 78 ára aldurs. Hann átti þrettán systkini. Kristjana Hjartardóttir, eiginkona Karls, varð 95 ára. Þau voru í hjónabandi í 71 ár og voru bæði fermd 15. maí 1932.

Sigríður Ingibjörg dóttir Karls tók þessa mynd af föður sínum í gær og birti á Facebook síðunni Langlífi.

DEILA