Bolungavík: áhyggjur af uppbyggingu við flugvöllinn í Skerjafirði

Reykjavíkurflugvöllur. Mynd: guide.Is

Bæjarstjórn Bolungavíkur ræddi málefni Reykjavíkurflugvallar á fundi sínum á þriðjudaginn og samþykkti einróma ályktun um völlinn. Þar er lýst yfir áhyggjum yfir ákvörðun Innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um
uppbyggingu við flugvöllinn í Skerjafirði sem muni þrengja að Reykjavíkurflugvelli og skerða nothæfi hans til framtíðar. Telur bæjarstjórnin það bæði „öryggis- og hagsmunamál að völlurinn geti áfram þjónað því fjölbreytta hlutverki sem honum er ætlað með tilliti til sjúkraflugs, aðgengi almennings að innviðum, atvinnulífi og uppbyggingu ferðaþjónustu á landsbyggðinni.“

Ályktunin í heild:

„Bæjarstjórn Bolungarvíkur vill ítreka það að Reykjavíkurflugvöllur sé mikilvægur hlekkur í tryggum samgöngum fyrir landsbyggðina og mikilvæg tenging við höfuðborgarsvæðið. Það er bæði öryggis- og hagsmunamál að völlurinn geti áfram þjónað því fjölbreytta hlutverki sem honum er ætlað með tilliti til sjúkraflugs, aðgengi almennings að innviðum, atvinnulífi og uppbyggingu ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Reykjavík er höfuðborg allra en skipulagsvaldið yfir Skerjafirðinum er hennar. Bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur áhyggjur af ákvörðun Innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu við flugvöllinn í Skerjafirði sem við teljum að muni þrengja að Reykjavíkurflugvelli og skerða nothæfi hans til framtíðar. Þess vegna er mjög mikilvægt að tryggt verði að rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri verði ekki stofnað í hættu. Samkomulag ríkis og borgar frá árinu 2019 um að tryggja rekstraröryggi á Reykjavíkurflugvelli a.m.k. næstu 20-25 árin helst óbreytt.“

DEILA