Kynning á leikmönnum Vestra í kvöld

Miðvikudaginn 10.maí býður knattspyrnudeildin öllum áhugasömum í Vallarhúsið á Torfnesi þar sem við kynnum til leiks leikmenn meistaraflokks karla í knattspyrnu fyrir komandi tímabil sem og þjálfaratríóið. Fyrsti heimaleikur liðsins er n.k. laugardag á Olísvellinum þar sem að okkar menn taka á móti ÍA.  Léttar veitingar verða í boði Fasteignasölu Vestfjarða.  Eigum saman skemmtilega kvöldstund, ræðum málin, förum yfir tímabilið og kynnumst liðinu okkar betur. Kynningin hefst klukkan 20:00 Öll velkomin.

 Kynning á liði Vestramanna fyrir komandi tímabil | Facebook 

 Knattspyrnudeild Vestra er með stuðningsmannasíðu á facebook sem allir eru velkomnir að fylgjast með.

Stuðningsmannasíða Vestra í knattspyrnu | Facebook

DEILA