ØYVIND NOVAK JENSSEN: sleipur þari á blautum steini : sýning 6.5 – 28.5 2023

Laugardaginn 5. maí kl. 16 var opnuð sýning á verkum Øyvind Novak Jenssen í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið Sleipur þari á blautum steini og stendur til sunnudagsins 28. maí.

Listamaðurinn var viðstaddur opnun sýningarinnar.

Í tilkynningu um sýninguna segir : „Sleipur þari á blautum steini“ er verkefni sem byggir á æðarrækt. Sumarið 2021 dvaldi Øyvind á æðareyju fyrir utan Vega í Noregi. Eftir dvölina þar hefur hann verið heillaður af húsum fyrir æðarfugla. Í Noregi er hefð fyrir því að byggja æðarfuglahús úr efnum sem eru auðfundin á þeim stöðum sem húsin eiga að rísa, og þau felld inn í landslagið til að líkja eftir náttúrulegum holum og hreiðrum. Eftir því sem æðarfuglaræktin verður meira og meira iðnvædd hafa húsin orðið sífellt tæknilegri. Øyvind vill ögra byggingartækninni og búa til „náttúruhús.“ Hann mun gera tilraunir með efni og form og byggja hreiður í galleríinu. Ætlun hans er að leiða áhorfendur inn í opinn heim undrunar og forvitni sem hann laðar fram með fundnu efni úr nánasta umhverfi.

Øyvind Novak Jenssen (f. 1988 NO) býr og starfar í Trysil, litlu sveitarfélagi á skógarsvæði í austurhluta Noregs. Hann er menntaður við Listaháskólann í Osló (MA 2021) og Listaháskólann í Þrándheimi (BA 2017). Hann er einnig lærður matreiðslumaður og vinnur með aðferðir og tækni úr matreiðslu. Hann notast við leikgleði í list sinni – og sér hana sem mikilvæga leið til að nálgast viðfangsefni sem snúa að sjálfbærni, sjálfræði vistkerfa, sambandi okkar við náttúruna og öðrum málefnum sem við fyrstu sýn virðast sveipuð ákveðnum drunga.

DEILA