Eins og mörgum er vonandi ljóst hefur átakið Íslenskuvænt samfélag: Við erum öll almannakennarar fengið framhaldslíf. Verður þar af leiðandi haldið áfram með þá vitundarvakningu sem er algerlega nauðsynleg til að íslenskt mál megi dafna sem best í breyttu umhverfi. Við sem að átakinu stöndum erum þess fullviss að Vestfirðir geti þar verið leiðandi afl.
Ekki skal átakið sem slíkt útlistað nánar hér. Bent skal á allmargar greinar og tilkynningar sem birst hafa á vef Bæjarins besta og annars staðar. Tekið er þó fram að yfirskrift átaksins hefur verið breytt. Gengur átakið nú undir nafninu Gefum íslensku séns – íslenskuvænt samfélag. Sú nafngift er betur til þess fallin að gera átakið aðlaðandi og opið öllum.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2023/04/Olafur_uw_23.jpg)
Um þessar mundir stendur yfir skipulagning viðburða ásamt því að drög eru lögð að kynningarefni. Liður í ferlinu er að bjóða upp á stutta kynningu á átakinu. Hefur nú þegar verið haldin kynning hjá Ísafjarðarbæ og standa vonir til þess að kynna megi á fleiri stöðum.
Það er einmitt ástæða þess að hér er stungið niður penna. Við viljum bjóða fyrirtækjum, stofnunum, íþróttafélögum og samtökum af hverju tagi upp á kynningu. Kynningu þar sem átakið er kynnt og rætt hvernig öllum sé í lófa lagið að leggja sitt af mörkum og það án nokkurs tilkostnaðar, hvernig auka megi vitund og tækifæri til íslenskunotkunar svo málið verði brúkunarhæft á sem flestum sviðum samfélagsins. Kynningin tekur um 15-25 mínútur.
Hefðuð þið áhuga á slíkri kynningu? Sé sú raunin megið þið endilega hafa samband í gegnum netfangið islenska@uw.is eða þá símleiðis í síma 8920799. Þar að auki erum við opin fyrir öllum samstarfsmöguleikum.
Fyrir hönd starfshóps Gefum íslensku séns – íslenskuvænt samfélag
Ólafur Guðsteinn Kristjánsson