550 milljónum úthlutað til ferðamannastaða

Alls hljóta 28 verkefni styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2023 fyrir alls 550 milljónir.

Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Heimilt er að fjármagna framkvæmdir sem snúa að öryggi ferðamanna, náttúruvernd og uppbyggingu, viðhaldi og vernd mannvirkja.

Hæsti styrkurinn að þessu sinni eru 158 m.kr. í verkefnið „Baugur Bjólfs“ á Seyðisfirði. Sex aðrir styrkir eru hver hærri en 20 m.kr.

„Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem situr á Bæjarbrún. Hér er einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð — frá mynni fjarðarins, yfir bæinn, fjallahringinn og suðvestur inn í dalinn. Að ofanverðu gnæfa tindar Bjólfs yfir,“ segir í lýsingu verkefnisins.

Alls bárust að þessu sinni 101 umsókn um styrki, samtals að fjárhæð 2.037.984.107 kr., til verkefna að heildarfjárhæð 6.401.045.030 kr.

Lista yfir verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni má finna hér að neðan. 

• 157,6 m. kr. Baugur Bjólfs útsýnispallur á Seyðisfirði
• 81,1 m. kr. Öryggi og náttúrvernd við Stuðlagil
• 72 m. kr. Útsýnispallur í hlíðum Reynisfjalls
• 27 m. kr. Hrísey – greið leið um fornar slóðir
• 24 m. kr. Uppbygging á Englandi í Borgarbyggð
• 21 m. kr. Yltjörn – Bætt aðgengi
• 20 m. kr. Seltún – áframhaldandi uppbygging
• 18,7 m. kr. Múlagljúfur – 2. áfangi. Framkvæmd og frekari hönnun áfangastaðar
• 15,5 m. kr. Innviðauppbygging, náttúruvernd og öryggismál í selafjörunni við Ytri-Tungu á Snæfellsnesi
• 13 m. kr. Staðarbjargavík – Hönnun útsýnispalla og stiga
• 12,3 m. kr. Umbætur í Ölfusdölum – Reykjadalur og nærliggjandi svæði
• 11,4 m. kr. Spákonufellshöfði – Fasi 2
• 10,5 m. kr. Hrunalaug uppbygging
• 10,2 m. kr Stikun og merkingar á gönguleið milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar
• 8,3 m. kr. Uppbygging Hóla í Hjaltadal sem áfangastaðar fyrir ferðamenn.
• 6,8 m. kr. Grímsey – bætt upplifun og öryggi
• 6 m. kr. Gengið úr leirnum
• 5,9 m. kr. Glymur í botni Hvalfjarðar
• 5,8 m. kr. Hólmsá-Rauðibotn-Hólmsárlón, skipulag, hönnun og merkingar
• 4,7 m. kr. Valagil – göngustígur og áfangastaður
• 4,5 m. kr. Hönnun á aðgengi og sturtuaðstöðu á Langasandi.
• 3,3 m. kr. Stikun og merkingar gönguleiðar yfir Fimmvörðuháls
• 3 m. kr. Göngustígar og aðgengi Listasafni Samúels í Selárdal
• 2,8 m. kr. Gönguleið að Selvíkurvita og rústum Evangers – 1. Hluti
• 2,5 m. kr. Bætt aðgengi að Sviðsetningu Haugsnesbardaga
• 600 þ. kr. Merking gönguleiðarinnar um Snæfjallahringinn
• 500 þ. kr. Áningarhólf við Skjöld í Stykkishólmi-Helgafellssveit
• 460 þ. kr. Gönguleið: Fellsströnd – Skarðsströnd

DEILA