Nýr fóðurprammi til Háafells

Háafell hefur skrifað undir samning við JT Electric í Færeyjum um smíði á nýjum fóðurpramma. Fyrir á Háafell fóðurprammann Ögurnes sem staðsettur er við Skarðshlíð í Ísafjarðardjúpi. Nýji pramminn verður staðsettur á nýju svæði Háafells í Kofradýpi. Pramminn þolir verulega ölduhæð, HS stuðullinn er 5,5m sem þýðir að pramminn á að þola allt að 11 metra háa öldu, en auk þess er stefni framan á prammanum sem gerir það að verkum að hann fer betur í sjónum.

Pramminn ber 480 tonn af fóðri fulllestaður en auk þess er 5 tonna síló fyrir hrognkelsafóður. Raunveruleg burðargeta er þó töluvert meiri, og var sérstaklega gætt að að stöðugleika og burði vegna ísingar. Öll kerfi um borð eru fullsjálfvirk og hægt að fjarstýra þeim frá landi.

Áhersla var lögð á að pramminn væri umhverfisvænn, bæði í orkubúskap og rekstri. Til dæmis er prammin búinn bæði spenni til þess að geta tekið við rafmagni úr landi en einnig batterí kerfi, svokölluðu hybrid kerfi sem hægt er að nota þar sem landtengingar eru ekki mögulegar.  Þegar hybrid kerfið er notað knýr batterí öll kerfin um borð, en ljósavélin er nýtt til þess að hlaða inn á batteríin. Með þessu má stytta keyrslutíma ljósavélanna úr sólahringskeyrslu niður í aðeins tvær til fjórar klukkustundir á sólahring. Þessi ráðstöfun stórbætir ekki bara orkunýtni heldur dregur einnig úr eldsneytisnotkun, lækkar kolefnislosun og hávaðamengun.

Enn annað skref hefur verið stigið í umhverfisvænni átt en á prammanum er sjóinntak sem hægt verður að nýta til vatnsfóðrunar. Þessa dagana fer fram mikil þróun í notkun vatnsfóðrunar þar sem fóðrinu er dælt með sjó í stað þess að því sé blásið. Kostirnir við vatnsfóðrun eru mun minni orkunotkun þar sem aðeins þarf litlar dælur til að fleyta sjónum með fóðrinu og sömuleiðis hverfur slit á rörunum en í dag slitna rörin yfir tíma vegna viðnáms fóðursins við rörin þegar því er blásið..

Gauti Geirsson er framkvæmdastjóri Háafells:  „Með kaupum á þessum pramma erum við aftur að stíga stór skref í átt að sjálfbærari rekstri þar sem pramminn verður bæði með landtengingar möguleika og með hybrid kerfi með öflugu batterýi. Þessu til viðbótar er það afar gleðilegt skref að pramminn sé tilbúin undir vatnsfóðrun og munum við fylgjast grannt með þróuninni í þeim efnum og byrja að nota þann möguleika um leið og færi gefst.“

„Við erum stolt af þessari nýju hönnun sem við höfum unnið að síðustu 6 mánuði“, segir Suni Justinussen, forstjóri JT electric. „Starfsfólk okkar hefur unnið náið með Háafelli að hönnun á þessum pramma, þar sem sérstakt tillit hefur verið tekið til krefjandi aðstæðna á Vestfjörðum.“

Stefnt er að því að afhenda nýja fóðurprammann í ágúst 2023.

DEILA