Verkefnið Sterkar Strandir hefur úthlutað styrkjum til 15 verkefna sem koma til framkvæmdar á árinu 2023 en 24 umsóknir bárust.
Alls voru að þessu sinni til úthlutunar kr. 10.500.000. en heildarfjárhæð styrkumsókna nam kr. 43.658.388.
Allt voru þetta umsóknir sem féllu vel að verkefninu Sterkar Strandir en eins og gefur að skilja þá var ekki til fjármagn til að úthluta til allra.
Styrkþegar, og verkefni þeirra, eru eftirfarandi:
Nafn umsækjanda | Heiti umsóknar | Styrkupphæð |
Galdur Brugghús ehf | Ný framleiðslulína | 2.300.000 |
Skíðafélag Strandamanna | Útivistarparadís á Ströndum undir forystu Skíðafélags Strandamanna | 1.500.000 |
Röfn Friðriksdóttir | Fótaaðgerðastofa | 1.200.000 |
Strandagaldur ses | Endurhönnun á Galdrasýningunni | 1.000.000 |
ÓBH útgerð | Sjóstangveiði frá Hólmavík | 750.000 |
Golfklúbbur Hólmavíkur | Uppbygging golfvallar – annar áfangi | 500.000 |
Leikfélag Hólmavíkur | Leiklistanámskeið fyrir börn | 450.000 |
Leikfélag Hólmavíkur | Leikrit í fullri lengd | 400.000 |
Sauðfjársetur á Ströndum ses | Vottað og viðurkennt framleiðslueldhús | 400.000 |
Sauðfjársetur á Ströndum ses | Viðburðadagskrá Sauðfjársetursins 2023 | 400.000 |
Christina van Deventer og Bragi Þór Valsson | tónfræði.is – 2. þrep | 400.000 |
Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofa | Búnaður til kvikmyndagerðar | 400.000 |
Fine Foods Íslandica ehf | Dry processing for small food producers | 300.000 |
Christina van Deventer | Myndskreyting barnabókarinnar Jax | 250.000 |
Magnea Dröfn Hlynsdóttir | Heilsurækt í Strandabyggð | 250.000 |