Fjölgar mest í Reykjanesbæ -Fækkar á Vestfjörðum

Íbúar Bolungarvíkur voru 995 þann 1. mars.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1070 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 137 íbúa að því er fram kemur í frétt Þjóðskrár.. 

Þegar horft er til heildarfjölda breytinga á íbúafjölda utan höfuðborgarsvæðisins þá hefur íbúum í Reykjanesbæ fjölgað mest frá 1. desember 2022 eða um 400 íbúa. Næst mest fjölgaði íbúum í Sveitarfélaginu Árborg eða um 109 íbúa og íbúum í Borgarbyggð fjölgaði um 103 á sama tímabili.

 Hlutfallslega fjölgaði íbúum mest í Kaldrananeshrepp eða um 6,2% miðað við tölur 1. desember 2022 til 1. mars 2023.

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Vestfjörðurm og Norðurlandi Vestra. Á Vestfjörðum fækkar um 0,1% eða 5 íbúa en á Norðurlandi Vestra er hlutfallsleg fækkun nánast engin en þar fækkar um 1 íbúa. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 1,7% sem er fjölgun um 538 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 1581 frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023 sem er um 0,6%.

DEILA