Vesturbyggð auglýsir eftir metnaðarfullum og verkefnadrifnum einstaklingi í starf verkefnastjóra samfélagsuppbyggingar.
Starfið er fjölbreytt og felur í sér störf þvert á öll svið sveitarfélagsins og náið samstarf með stjórnendum þes
Meginviðfangsefni starfsins er vinna að stefnumótun, innleiðingu hennar og framkvæmd í sveitarfélaginu. Verkefnin varða m.a. atvinnuþróun og innviðauppbyggingu. Verkefnastjóri vinnur með stjórnendum að framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar. Um er að ræða spennandi framtíðarstarf í skemmtilegu og lifandi starfsumhverfi.
Leitað er eftir einstaklingi með leiðtogahæfni, sem hefur tileinkað sér sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og býr yfir ríkum og góðum samskiptahæfileikum og þjónustulund.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Rík og góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
- Rík krafa um frumkvæði og framkvæmdagleði
- Sjálfstæði í störfum og góð skipulagshæfni
- Jákvæðni og aðlögunarhæfni
- Góð tölvufærni og þekking á samfélagsmiðlum
Helstu verkefni
- Vinna með bæjarstjórn og starfsfólki að stefnumörkun sveitarfélagsins
- Verkefnastjórn uppbyggingarverkefna á sviði framkvæmda
- Vinna með sveitarfélaginu og hagaðilum að nýsköpun
- Upplýsingamiðlun og kynningar á verkefnum sveitarfélagsins
- Samskipti við ýmsa hagaðila þar á meðal atvinnurekendur, íbúa og stjórnvöld
- Vinna við gerð styrkumsókna