Matvælaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum úr Fskeldissjóði. Fiskeldissjóði er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Til úthlutunar á árinu 2023 eru kr. 247.700.000.
Við úthlutun styrkja úr sjóðnum er sérstaklega horft til verkefna sem snúa að:
- Styrkari samfélagsgerð (menntun, menning, íbúaþróun)
- Uppbyggingu innviða (atvinnulíf, þjónusta)
- Loftslagsmarkmiðum og umhverfisvernd (fráveita, orkuskipti, vatnsveita)
- Tengingu við sjókvíaeldi (hafnir, aðstaða í landi)
- Nýsköpun hverskyns, tengd ofangreindum þáttum.
Framkvæmdir við vatnsveitur, fráveitu, byggingaframkvæmdir og samgöngubætur eru á meðal þeirra innviðaverkefna sem sjóðurinn hefur styrkt í úthlutunum sínum.
Til úthlutunar í fyrra voru 185,1 m.kr. og eykst því fjárhæðin um þriðjung milli ára, sem endurspeglar vöxtinn í sjókvíaeldinu milli ára. Það eru fiskeldisfyrirtækin sem greiða svonefnt fiskeldisgjald af hverju slátruðu kg. af eldisfiski. Um þriðjungur gjaldsins rennur í Fiskeldissjóð og um tveir þriðju í ríkissjóð.
Á þessu ári er fiskeldisgjaldið 18,33 kr/kg af slægðum laxi. Gjaldið er helmingur þess eða 9,16 kr/kg af regnbogasilungi.