Þann 10. nóvember voru í samráðsgátt stjórnvalda kynnt áform um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og endurupptöku svæðisskiptingu þeirra, sem lögð var af 2018. Umsagnarfrestur rann út 8. desember síðastliðinn og bárust alls 37 umsagnir.
Í umsögn Landssambands smábátaeigenda er áformum ráðherra harðlega mótmælt:
„Nái þau fram að ganga er það í mikilli ósátt við þá sem stundað hafa strandveiðar og afturhvarf til þess veiðikerfis sem Alþingi samþykkti að hafna árið 2018.“
Með breytingunni voru strandveiðar heimilaðar í 12 veiðidaga innan hvers mánaðar, mánuðina maí, júní, júlí og ágúst. Á sl. þremur árum hefur það ekki orðið raunin og á síðasta sumri keyrði um þverbak þegar veiðarnar voru stöðvaðar 21. júlí.
„Landssamband smábátaeigenda skorar á matvælaráðherra að hætta við þau áform sem kynnt eru í Samráðsgáttinni. Þess í stað beiti ráðherra sér fyrir því að fellt verði brott ákvæði í lögum um stjórn fiskveiða sem kveður á um skyldu Fiskistofu til að stöðva strandveiðar verði sýnt að afla sem ákveðinn er með reglugerð verði náð. Þannig væri tryggt að bátar allra strandveiðisvæða landsins fái heimild til að róa 12 daga í hverjum mánuði, maí, júní, júlí og ágúst. Jafnframt myndi breytingin tryggja sátt milli strandveiðisjómanna án tillits þess hvar á landinu þeir gera út.“, eins og segir í umsögninni.
Umsögn Landssambands smábátaeigenda í heild má lesa hér.