Jóhanna Ósk Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sæferða í Stykkishólmi.
Jóhanna sem er með BSc. gráðu í Viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst tók við stöðu svæðisstjóra Eimskips á Vestfjörðum fyrr á árinu og hún mun jafnframt gegna því starfi áfram.
Áður starfaði hún hjá fiskeldisfyrirtækinu Hábrún og þekkir því sjávarútveginn á Vestfjörðum vel.
Siglingar ferjunnar Baldurs eru mikilvægur hlekkur í almenningssamgöngum á svæðinu og mikill fengur að fá Jóhönnu í þetta verkefni og þannig samþætta enn betur alla starfsemi á Vestfjörðum segir í tilkynningu frá Eimskip.
Gunnlaugur Grettisson sem verið hefur framkvæmdastjóri Sæferða frá 2015 tók fyrr á árinu við stöðu framkvæmdastjóra Eimskips í Svíþjóð með aðsetur í Helsingborg.