Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra segir á Alþingi í skriflegu svari við fyrirspurn Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur um álit auðlindanefndar frá árinu 2000 að að taka ætti auðlindaákvæði upp í stjórnarskrá.
Segir ráðherra í svarinu að í því auðlindaákvæði þurfi að vera skýrt að enginn geti fengið auðlindir í eigu þjóðarinnar til varanlegra afnota eða eignar. „Í framhaldi af því þyrfti að útfæra betur í lögum um stjórn fiskveiða til hve langs tíma hægt er að fá afnotarétt af auðlindum í eigu þjóðar. Rétt er að taka fram að auðlindanefnd tilgreindi tvær mismunandi leiðir til þess, hina svokölluðu fyrningarleið annars vegar og veiðigjaldsleið hins vegar.“ Ráðherrann svarar því ekki hvora leiðina hann vilji fara.
Ráðherrann telur rétt að kveða á um nánari útfærslu á ákvæðinu um heimild til afnota eða nýtingar á auðlindinni í lögum en ekki í stjórnarskrá. „Í dag er réttarstaðan sú að aflaheimildir eru aðeins varanlegar í þeim skilningi að þær verða hvorki felldar niður né þeim breytt nema með lögum, sbr. dóm Hæstaréttar frá 6. apríl 2000 í máli nr. 12/2000.“ segir í svari matvælaráðherra.