Páll Helgi ÍS 142 sökk við Skipavíkurbryggju í Stykkishólmi í óveðrinu sem reið yfir um síðustu helgi.
Páll Helgi ÍS-142 er dragnóta- og togbátur smíðaður 1977 af Básum hf. í Hafnarfirði og er skráð heimahöfn Bolungarvík en þar var báturinn gerður út áratugum saman af Guðmundi Rósmundssyni og sonum hans en þeir seldu útgerðina árið 2020.
Eigandinn nú er Páll Helgi ehf. og var virði bátsins skráð rétt rúm 5,1 milljón í ársreikningi 2019, en árið 2020 var virði bátsins skráð núll í efnahagsreikningi ársreikningsins.