Halldór Halldórsson, stjórnarformaður húsnæðissjálfseignarstofnunar (Hses) Stúdentagarða Háskólaseturs Vestfjarða segir að unnið sé hörðum höndum að framgangi stúdentagarðanna. Ætlunin er að reisa 40 íbúðir á tveimur hæðum á lóðinni Fjarðarstræti 20 og hafa þær tilbúnar við upphaf skólahalds Háskólaseturs Vestfjarða haustið 2023.
Ágúst Gíslason, byggingatæknifræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri og hóf hann störf á þriðjudaginn. Verið er að ganga frá skráningu húsnæðissamvinnufélagsins svo og að fá verkfræðistofu til þess að vinna bruna- og burðarþolshönnun.
Grunnhönnun húsnæðisins liggur fyrir og er hún eftir Kjartan Árnason, arkitekt á Ísafirði.
Heildarstofnverð nemendagarðanna eru 616 milljónir króna. Heildarfermetrafjöldinn er 1.220. Ríkið leggur fram 18% af stofnkostnaði og Ísafjarðarbær 12%.