Óbyggðanefnd er sjálfstæð úrskurðarnefnd sem starfar á grundvelli III. kafla þjóðlendulaga og hefur þríþætt hlutverk.
- Að kanna og skera úr um hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og eignarlanda.
- Að skera úr um mörk þess hluta þjóðlendu sem nýttur er sem afréttur.
- Að úrskurða um eignarréttindi innan þjóðlendna.
Óbyggðanefnd hefur nú til meðferðar Ísafjarðarsýslur (svæði 10B) og Austfirði (svæði 11).
Aðalmeðferð óbyggðanefndar er varðar mál 6-8/2021 á svæði 10B, Ísafjarðarsýslum, fer fram í Edinborgarhúsinu, Ísafirði, miðvikudaginn 7. september og hefst klukkan 9.
Skipulag þinghalds er eftirfarandi:
- Skýrslutökur í öllum málum.
- Málflutningur:
- Lögmaður ríkisins – mál nr. 6–8 sameiginlega.
- Lögmenn gagnaðila í máli nr. 6 – og andsvör í því máli. (Lögmenn sem einungis eru í máli nr. 6 geta farið að þessu loknu.)
- Lögmenn gagnaðila í málum nr. 7–8 (sameiginlega) – og andsvör í þeim málum.
Þinghaldið er öllum opið.