Bergdís Þrastardóttir hefur verið ráðin í starfi leikskólastjóra á Arakletti á Patreksfirði.
Bergdís er fædd og uppalin á Patreksfirði og flutti heim í fyrra eftir að hafa búið í Danmörku í 14 ár.
Þar lauk hún m.a. doktorsprófi í íslenskum miðaldabókmenntum, rak eigið fyrirtæki og vann við kennslu og viðburðarstjórnun.
Bergdís kemur nú síðast úr starfi sem umsjónarkennari við Patreksskóla og á þrjú börn á leikskólaaldri svo hún er ekki ókunn foreldrum á svæðinu.