Fiskistofa telur rétt að benda á að sækja þarf sérstaklega um öll sérveiðileyfi fyrir hvert fiskveiðiár.
Núgildandi sérleyfi falla úr gildi þann 31. ágúst nk.
Vegna komandi fiskveiðárs 2022/2023 þarf að sækja sérstaklega um leyfi í eftirtöldum tilfellum:
- Dragnótarveiðileyfi
- Leyfi til veiða á kúfskel til manneldis *
- Leyfi til veiða á beitukóngi *
- Leyfi til veiða á kröbbum
- Leyfi til frístundaveiða (Skilyrði útgáfu leyfis er að rekstraraðili báts hafi ferðaskipuleggjandaleyfi Ferðamálastofu og þeir bátar sem hyggjast veiða á sjóstöng án fénýtingar aflans þurfa farþegaleyfi Samgöngustofu)
* Með umsókn um stjörnumerkt leyfi skal fylgja samningur um vinnslu í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða.
Í báðum tilfellum þarf staðfesting frá MAST að fylgja um að viðkomandi vinnsla hafi gilt vinnsluleyfi frá MAST.
Fiskistofa vekur einnig athygli á að selveiðar eru óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.