Ef þú ert með góða hugmynd sem þú villt koma í framkvæmd væri góður kostur að taka þátt í Startup Westfjords 2022: „Frá hugmynd til framkvæmdar“
Að þessu sinni fer nýsköpunarhemillinn Startup Westfjords á vegum Blábankans á Þingeyri fram yfir tvær helgar í haust, þ.e. 24.-25. september og 1.-2. október.
Dagskrá er frá kl. 10-17 alla dagana, með fyrirlestrum, hugarflugsfundum, einkatímum með mentorum og frjálsum tíma.
Helstu dagskrárliðir eru:
- Stofnun fyrirtækis
- Fjármögnun, þ.á m. lán og styrkir
- Bókhald og fjármálastjórn
- Markaðssetning, þ.á m. vörumerki (e. branding) og notendaupplifun
- Umbúðir og framsetning
- Samfélagsmiðlar
- Verkefna- og tímastjórnun
- Vellíðan og jafnvægi
Aðstaða í samvinnurýmum Blábankans verður í boði á meðan á dagskrá stendur, sem og í vikunni á milli eiginlegrar dagskrár fyrir þau sem kjósa að dvelja á svæðinu allan tímann.
Til viðbótar við dagskrá hemilsins er innifalið í gjaldinu hádegismatur og drykkir á meðan á honum stendur.
Startup Westfjords 2022 fer fram á íslensku en einkatímar með mentorum eru í boði á íslensku og ensku.
Hafið samband á info@blabankinn.is fyrir frekari upplýsingar. Eins getum við aðstoðað með að finna gistingu á meðan á dvöl ykkar stendur.