U20 ára landslið karla hélt af stað á miðvikudag til Tbilisi í Georgíu þar sem EM 2022, FIBA European Championship, fer fram en strákarnir leika í B-deild Evrópumótsins.
Tveir úr liði Vestra eru í þeim hópi en það eru bræðurnir Hugi og Hilmir Hallgrímssynir.
Ísland hefur leik í A-riðli og leikur gegn Rúmeníu, Hollandi, Lúxemborg og Eistlandi áður en leikið verður um sæti en keppni hefst í dag í öllum riðlum.
Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði og beinum útsendingum frá mótinu í opnu streymi á heimasíðu keppninnar hér fyrir neðan:
Heimasíða keppninnar: https://www.fiba.basketball/europe/u20b/2022