Sveitarstjórn Tálknafjarðar afgreiddi til síðari umræðu á fundi sínum í síðustu viku tillögur um breytingar á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Að sögn Ólafs Þórs Ólafssonar sveitarstjóra eru þessar breytingar þríþættar.
- Breytingar á fagnefndum sveitarfélagsins.
- Fagnefndum fjölgar úr þremur í fimm og verða þessar:
- Atvinnu- og hafnarnefnd
- Umhverfis- og bygginganefnd
- Skipulagsnefnd
- Fræðslunefnd
- Íþrótta-, menningar og æskulýðsnefnd.
- Fagnefndum fjölgar úr þremur í fimm og verða þessar:
- Fundum sveitarstjórnar er fjölgað í 2 á mánuði og fundardagar breytast.
- Frá og með næsta hausti mun sveitarstjórn funda annan og fjórða þriðjudag í mánuði.
- Nauðsynlegar orðalagsbreytingar vegna vísanna í lög og samræmingar og ýmisleg slík atriði.