Hér hefur áður verið greint frá styrk til öryggismála og aðgengis ferðamanna við Norðurfjarðarhöfn.
Að þessu sinni er úthlutunin rúmlega 548 milljónir króna.
54 verkefni fengu styrk en Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Þeir styrkir sem komu í hlut Vestfjarða voru um 16% af úthlutnarupphæðinni samtals 80.901.755 kr.
Vestfirðir
Halldóra Björk Norðdahl Hjóla Vestfirðir / Cycling Westfjords | Styrkur sem að setja upp upplýsingaskilti á Ísafirði um hjólaleiðirnar | 1.822.661 |
Látrar í Aðalvík | Uppbygging lendingaraðstöðu til að tryggja aðgengi og öryggi ferðamanna. | 4.782.294 |
Valdimar Össurarson | Aðstaða ferðamanna í Kollsvík. | 11.200.000 |
Árneshreppur | Öryggismál og aðgengi ferðamanna við Norðurfjarðarhöfn. | 55.000.000 |
Ísafjarðarbær | Göngustígur að Klofningi. | 1.208.800 |
Ísafjarðarbær | Útsýnispallur og aðgengi að fjöru á Flateyri. | 4.288.000 |
Reykhólahreppur | Fullnaðarhönnun Kúalaugar og útboðsgögn. | 2.600.000 |