Sautján af tuttugu stærstu sveitarfélögum landsins hækkuðu almenn leikskólagjöld á milli ára samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Er þar átt við 8 tíma vistun með fæði.
Fjórtán sveitarfélög hækkuðu gjöld á bilinu 3 -5,7%, þar af hækkuðu gjöld umfram 4% hjá átta sveitarfélögum.
Mest hækkuðu almenn gjöld (gjöld án afslátta), 8 tímar m. fæði, hjá Ísafjarðarbæ um 5,7% en lækkuðu mest hjá Mosfellsbæ, 3,6%.
Sömu gjöld fyrir einstæða foreldra hækkuðu einnig mest hjá Ísafjarðarbæ, um 6,7% en lækkuðu mest hjá Fjarðabyggð, 3,5%.
Verðlagseftirlit ASÍ hefur nú gert aðgengilegt nýtt gagnvirkt mælaborð með tölulegum upplýsingum um leikskólagjöld sem finna má á heimasíðu samtakanna.
.