Tríóið mun leika íslensk þjóðlög í útsetningum Ásgeirs. Á undaförnum árum hefur Ásgeir gefið út þríleik með íslenskum þjóðlögum, hljóðritaðar í Istanbul, Plovdiv og Teheran. Plöturnar þrjár innihalda sungin og ósungin lög en tríóið mun leika “instrumental” útgáfur af nokkrum af perlum íslenska þjóðlagaarfsins. Ásgeir hefur á undanförnum árum sérmenntað sig í leik strengjahljóðfæra frá Mið-Austurlöndum og Suðaustur-Evrópu og hann leika á arabíska og tyrkneska lútu, griskt bouzouki og búlgarska tambouru.
Með honum í tríóinu munu leika þeir Erik Qvick á slagverk og Þorgrimur Jónsson á kontrabassa.
Aðgangseyrir: 3.000 kr.
Miðasala við hurðina.