Til álita kemur að móta tillögur um skiptingu útsvars milli sveitarfélaga þegar einstaklingur vinnur í öðru sveitarfélagi en þar sem hann á lögheimili. Þetta kemur fram í umsögn Byggðastofnunar við þingsályktunartillögu nokkurra þingmanna um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga. Frá þessu var greint í Morgunblaðinu. Í þingsályktunartillögunni er lagt til að skipaður verði starfshópur sem kanni möguleikann á skiptingu útsvarstekna milli tveggja sveitarfélaga. Kannað verði hvort einstaklingar ættu að greiða hluta útsvars til sveitarfélags þar sem þeir eiga frístundahús eða jörð, þó þeir eigi lögheimili í öðru sveitarfélagi, sem fær allar tekjur af útsvari hans í dag.
Í umsögn Byggðastofnunar kemur fram að að verkefni hópsins ætti að vera víðtækara og hann skoði einnig tilvik þar sem einstaklingur flytur lögheimili en samkvæmt núgildandi reglum fellur allt útsvar á flutningsárinu til annars sveitarfélagsins en skiptist ekki milli sveitarfélaganna fyrir og eftir flutning. Þá kemur eins og fyrr segir einnig til álita að mati Byggðastofnunar að mótaðar verði tillögur um skiptingu útsvarsins ef einstaklingur vinnur í öðru sveitarfélagi en þar sem hann á lögheimili.