Stúlkurnar í 6.flokki kvenna gerðu sér ferð á Goðamótið á Akureyri um liðna helgi.
Þær stóðu sig mjög vel á mótinu og er ljóst að framtíðin er björt í kvennaknattspyrnu á Vestfjörðum.
Aðeins eitt lið tók þátt að þessu sinni og lék það í keppni C liða. Liðið endaði mótið í 10. sæti.
Frábær árangur hjá stelpunum sem fengu nú að reima á sig takkaskóna í fyrsta skipti í langan tíma eftir vetraræfingar inni á parketinu.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2022/04/6-fl-kvenna-c.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2022/04/6.-fl-kvenna-i-Vestra-b.jpg)