Vestri er fallinn úr úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Subway-deildinni, eftir tap gegn Breiðabliki í Smáranum í Kópavogi í 20. umferð deildarinnar í gærkvöld.
Breiðablik leiddi með þremur stigum eftir fyrsta leikhluta, 31:28. Blikar juku forskot sitt í öðrum leikhluta í sjö stig og var staðan 56:49, Breiðabliki í vil, í hálfleik.
Vestramenn byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og var staðan 81:76, Breiðablik í vil, að þriðja leikhluta loknum.
Vestramenn skoruðu einungis 15 stig gegn 31 stigi Breiðabliks í fjórða leikhluta og þar við sat.