Meirihluti Íslendinga er hlynntur lagningu Sundabrautar

Sundabraut fellur væntanlega undir staðbundna gjaldtöku í ályktunardrögunum.

Mikill meirihluti Íslendinga er hlynntur eða frekar hlynntur lagningu Sundabrautar.

Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar sem markaðsrannsóknarfyrirtækið Maskína lagði fyrir tilviljunarkennt úrtak úr Þjóðskrá. Könnunin fór fram dagana 7-14. febrúar síðastliðinn og voru svarendur alls 926 talsins.

Því eldri sem svarendur voru því líklegri voru þeir að vera hlynntir framkvæmdinni og þá var mikill munur á afstöðu fólks eftir búsetu.

Alls voru 46,8% aðspurða (379)  mjög hlynntir því að Sundabraut yrði að veruleika en 19,5% (158) fremur hlynntir. Þá voru 27,5% í meðallagi (223) hlynntir eða andvígir framkvæmdinni.  Aðeins 1,7% (14) aðspurðra voru mjög andvígir framkvæmdinni

Einstaklingar sem búa á Vesturlandi eða Vestfjörðum voru afar hrifnir af hugmyndinni (76,2% mjög hlynntir) en þeir sem voru búsettir á Suðurlandi voru ekki eins hrifnir (35% mjög hlynntir).

DEILA