Frá og með fimmtudeginum 3. febrúar 2022 er felld niður línuívilnun í ýsu og löngu sem ákveðin er í reglugerð nr. 921/2021 um línuívilnun segir í tilkynningu frá Fiskistofu.
Á síðasta ári átti línuívilnun að falla niður frá 11 febrúar en þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Kristján Þór Júlíusson framlengdi línuívilnun þannig að hún var í gildi út maí.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur nýlega svarað erindi Landssambands smábátaeigenda um að auka leyfilegan heildarafla í ýsu um 8.000 tonn. Þar segir m.a.:
„Því hefur verið ákveðið að auka ekki aflaheimildir í ýsu að sinni. Þess í stað verði fylgst áfram með þróun ýsuveiða næstu vikur og mánuði í samráði við Hafrannsóknastofnun og Fiskistofu.“
Óvissa er því um hvort línuívilnun taki aftur gildi á þessu fiskveiðiári.