Hrafnhildur Skúladóttir hefur verið ráðin í nýtt sameinað starf íþrótta- og tómstundafulltrúa í Strandabyggð frá 1. febrúar 2022.
Hrafnhildur hefur starfað sem forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis Strandabyggðar á árunum 2015-2017 og frá 2019 og hefur langa starfsreynslu á sviði íþrótta-og ungmennastarfs, ferðamennsku og viðburðastjórnun.
Hrafnhildur er stúdent af náttúrufræðibraut Borgarholtsskóla og málabraut MA og hefur lokið háskólaeiningum í ferðamálafræði, læknisfræði og lögfræði. Hún brennur m.a. fyrir lýðheilsu og forvarnarmálum.
Á verksviði nýs íþrótta og tómstundafulltrúa er m.a. stjórn og verkefnavinna á málaflokkum íþrótta, tómstunda- og menningarstarfs, forvörnum og lýðheilsuverkefnum á vegum Strandabyggðar, vinna að stefnumótum, umbótum og uppbyggingu með fagnefndum og sveitarstjórn ásamt faglegri og rekstrarlegri ábyrgð á starfsemi Íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis, félagsmiðstöðinni Ozon, félagsstarfi eldri borgara, ungmennahúsi og skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi sem sveitarfélagið kemur að.