Fimtán smit greindust í gær á Vestfjörðum. Þrjú smit voru á Patreksfirði og eitt á Bíldudal. Á Þingeyri greindust 6 smit, 4 á Ísafirði og eitt í Súðavík. Ekkert smit var í Strandasýslu eða í Reykhólahreppi.
Alls eru nú 67 virk smit í fjórðungnum. Flest þeirra eru á Patreksfirði eða 38. Tólf smit eru á Ísafirði og 8 á Þingeyri. Tvö smit eru á Bíldudal og Tálknafirði og í Bolungavík og Súðavík. Eitt smit er á Reykhólum.
1.613 smit voru greind í gær og er það metdagur.
Nærri 25 þúsund manns eru í einangrun eða í sóttkví. Fjörtíu manns eru á sjúkrahúsi með covid og þar af eru 3 í gjörgæslu.
Frá upphafi faraldursins hafa verið 60 þúsund smit staðfest.
https://www.ruv.is/kveikur/covid/