Breytingar hafa orðið á stjórnun skólans en Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari er í veikindaleyfi og leysir Heiðrún Tryggvadóttir áfangastjóri hann af á meðan. Heiðrún sinnir áfram hluta af áfangastjórastörfum en Martha Kristín Pálmadóttir fjarnámsstjóri hefur tekið að mestu við áfangastjórastarfinu.
Í samstarfi við kennara var s.l. haust unnið að nýrri stefnu varðandi mætingar og námsmat sem ætlað er að stuðla að betri námsmenningu í MÍ. Í stefnunni felst m.a. eftirfarandi:
- Nemendur þurfa að vera með að minnsta kosti 85% mætingu til að fá lokamat í áfanga.
- Kennarar mega gera kröfu í námsáætlun um að nemandi þurfi að ná lágmarkseinkunn í ákveðnum námsþáttum. Útfærslan getur verið ólík hjá hverjum og einum kennara.
- Varðandi símanotkun minnum við á að símar eru aðeins notaðir í kennslustundum þegar kennari gefur leyfi til þess.
Grímuskylda er í skólanum þar sem ekki er hægt að halda fjarlægðarmörk. Í skólastofum eru fjarlægðarmörkin 1 m en annars 2 m.