Grálúðan er verðmætasta flatfiskategundin á Íslandsmiðum.
Grálúða er stór flatfiskur og getur náð allt að 1,2 m lengd. Hún er dökkgrá á báðum hliðum ólíkt öðrum flatfiskum sem eru ljósir á annarri hliðinni og dökkir á þeirri hlið sem upp snýr.
Grálúða verður kynþroska 9 – 12 ára gömul. Hún er með stóran kjaft og beittar tennur, enda mikill ránfiskur og étur aðallega loðnu en einnig ýmsar rækjutegundir.
Nöfn á öðrum tungumálum:
- Latína: Reinhardtius hippoglossoides
- Enska: Greenland halibut
- Norska: Blåkveite, svartkveite
- Danska: Hellefisk
- Færeyska: Svartkveite
- Þýska: Schwarzer Heilbutt
- Franska: Flétan du Groenland
- Spænska: Halibut negro
Af vefsíðunni fiskbokin.is