Svona þegar nálgast jólin og mikill tími hjá mörgum fara í bakstur og matargerð fannst mér alveg upplagt að skella inn einni afskaplega einfaldri og fljótlegri uppskrift.
4 kjúklingabringur
Innihald
2 msk ólífuolía | |
250 ml rjómi | |
1/2 dl Hot chilí sauce frá Heinz (eða Heinz chilí sauce fyrir mildari rétt) | |
1 msk oregano | |
1 tsk kjúklingakraftur frá Oscars | |
1 dl rifinn ostur | |
salt og pipar Leiðbeiningar 1.Hitið olíu á pönnu. Skerið kjúklinginn í bita, saltið og piprið og steikið á pönnu. Takið af pönnu og látið í ofnfast mót 2.Setjið rjóma, chilísósu og oregano í pott og hitið. Saltið og piprið að eigin smekk. 3.Hellið sósunni yfir kjúklinginn og stráið rifnum osti yfir allt. 4.Hitið í 210°c heitum ofni í 15 mínútur. 5.Berið fram með hrísgrjónum/tagliatelle og salati. Verði ykkur að góðu. |