Fiskistofa hefur tekið saman samanlagða aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila og lögaðila.
Samkvæmt útreikningum Fiskistofu fer eitt félag yfir 12% leyfilegt heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda, Brim hf. 13,2%.
Í krókaaflamarkskerfinu fara tvö félög yfir 4% leyfilega aflahlutdeild í þorski, Háaöxl ehf. 4,22% og Stakkavík ehf. 4,01%.
Líkt og undanfarin ár þá er Brim hf. hæst í aflamarkskerfinu en einhver breyting hefur orðið á næstu sætum sem skýrist af því að úthlutun í loðnu var búin þegar útreikningarnir fóru fram.
Í krókaaflamarkskerfinu er Grunnur ehf. með mestu krókaaflahlutdeild.
Í meðfylgjandi skjölum má sjá alla aðila sem eiga fiskiskip með skráðar aflahlutdeildir.
Aflahlutdeildir útgerða í aflamarkskerfinu
Krókaaflahlutdeildir útgerða í krókaaflamarkskerfinu