Málþing verður í Safnahúsinu/Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði laugardaginn 23. október 2021 í tengslumvið Veturnætur á Ísafirði
Þetta er annað málþingið um efnið.
Þegar spáð er í íslenska bókmenntasögu má sjá hvernig mörg af lykilverkum íslenskra bókmennta eiga rætur sínar að rekja til Vestfjarða.
Markmið málþingsins er að skapa samræðu um þetta dulmagnaða efni og kortleggja um leið þó ekki væri nema brot af þeim handritum og bókmenntaverkum sem rísa úr Djúpinu frá miðöldum til okkar tíma.
Einnig er hugað að djúpstæðu sambandi skáldskapur og tónlistar á Vestfjörðum.
Málþingin eru hluti af verkefninu Lesið í sköpunarkraft Vestfjarða og takmark þeirra er að safna efni í kver um vestfirska bókmennta‒ og menningarsögu.
Tilurð verkefnisins hvílir í Akurskóla íslenskudeildar Manitóbaháskóla á Vestfjörðum (2008-2015) og því samstarfi sem komið var á fót í því samhengi milli deildarinnar og Háskólaseturs Vestfjarða. Velunnari verkefnisins er Guðmundur Hálfdánarson, Forseti Hugvísindadeildar og Jóns Sigurðssonar prófessor við Háskóla Íslands, og verkefnisstjórar bókmenntafræðingarnir Birna Bjarnadóttir og Ingi Björn Guðnason.
Dagskrá:
10:00‒10:15 ― OpnunGuðmundur Hálfdánarson, Jóns Sigurðssonar prófessor við Háskóla Íslands ávarpar samkomuna.
10:15‒10:30 ― Lesið í sköpunarkraft Vestfjarða, kynningBirna Bjarnadóttir: Dómkirkjubragur.
10:30‒11:30 ― Sálmar og kvæði úr DýrafirðiÁrni Heimir Ingólfsson: Tónlistin í Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum í Dýrafirði.Johnny Lindholm: „… sem Guðs mynd í mér spillir“. Fáein orð um notkun myndmáls í skáldskap sr. Ólafs Jónssonar á Söndum.
11:30-11:45 – Kaffihlé
11:45‒12:15 ― Meira af skáldskap og tónlistIngunn Ósk Sturludóttir: Sönglagið í Djúpinu.
12:15‒13:30 ― Hádegishlé
13:30‒14:30 ― Frá Vestfjörðum til Vesturheims, þessa heims og annarsHermann Stefánsson: „Daufir heyra, dauðir rísa upp“ — um lifandi manns róm á Vestfjörðum í byrjun 20. aldar.Guðfinna M. Hreiðarsdóttir: „… almennt nefnd „skáldkona“. Sagt frá skáldkonunni Guðrúnu Þórðardóttur sem fæddist á Tindum í Geiradal árið 1817 og lést að Akra í Norður-Dakóta árið 1896.
14:30‒15:00 ― Kaffihlé
15:00‒16:00― Séð úr DjúpinuÞröstur Helgason: Utan og innan hrings með Steini.Eiríkur Örn Nordahl:„Einlægur Önd – Ísfirðingur í Reykjavík eða krækiber í helvíti?“
16:00‒16:30 ― LokaorðBirna Bjarnadóttir og Ingi Björn Guðnason stýra umræðum