Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu með sekt.
Formaður yfirkjörstjórnar mun hafa fengið hæstu sektargerðina er hljóðar upp á 250 þúsund krónur en hinir meðlimir yfirkjörstjórnarinnar fengu sektargerð upp á 150 þúsund krónur.
Sektargerðin mun tilkomin vegna brota á ákvæði kosningalaga um frágang kjörgagna.
Heimildir mbl.is herma að stjórnarmenn í yfirkjörstjórn séu ekki taldir líklegir til þess að greiða sektir, sem lögreglan á Vesturlandi hefur boðið þeim að greiða.
Að því gefnu færi málið til ákærusviðs og mögulega til meðferðar dómstóla.