Í síðustu viku afhenti Rúko vinnuvélar, forsvarsmönnum Borgarverks nýjan Liebherr LR 1160 beltakrana sem nota á við lengingu Sundabakka, Ísafirði.
Þessi krani er sá stærsti sinnar tegundar á Íslandi. Eiginþyngd kranans er 184 tonn, mesta hífigeta hans er 160 tonn og mesta hæð 136 metrar. Kraninn er mjög sveigjanlegur í notkun og getur t.d. keyrt með þyngd í króknum. Einnig fylgir krananum 44 metra langt jib. Kraninn getur sett sig saman og sundur sjálfur, þ.e. ekki þarf annað tæki í samsetninguna.
Kraninn er kominn í vinnu á Ísafirði en þar mun hann m.a. sjá um lengingu á viðlegukanti um tæpa 400 metra og við niðurrekstur á stálþilum í höfnina.