Muggsstofa mun opna formlega föstudaginn 1. október klukkan 14:00.
Muggsstofa er samstarfsverkefni Vesturbyggðar og Skrímslasetursins en þar verður fjölbreytt þjónusta og aðstaða til sköpunar og frumkvöðlastarfs.
Þar verður opinber þjónusta aðgengileg og stuðlað verður að eflingu menningar- og félagsstarfs sem og auka þekkingu og styrkja ímynd Bíldudals. Í miðstöðinni fer einnig fram starfsemi bókasafnsins og félagsstarf aldraðra.
Nafnið Muggsstofa er dregið frá fjölhæfa listamanninum Guðmundi Thorsteinssyni, betur þekkur sem Muggur. Muggur fæddist þeim Pétri J. Thorsteinssyni og Ásthildi Guðmundsdóttir á Bíldudal 1891.
Dagskrá opnunarhátíðar verður fjölbreytt en ásamt kræsingum frá Kvenfélaginu Framsókn mun bæjarstjóri ávarpa gesti, forseti bæjarstjórnar mun segja nokkur orð, Þröstur Leó les stutt æviágrip Muggs, brauðpeningar verða til sýnis, Alda, forstöðumaður bókasafna í Vesturbyggð les Dimmalimm, tónlistaratriði frá tónlistarskólanum í Vesturbyggð og margt fleira.