Opnaður hefur verið nýr og betri bifreiðatöluvefur Samgöngustofu.
Með nýjum vef er aðgengi að tölfræði um ökutæki á Íslandi stórbætt og framsetningin býður upp á ýmsa möguleika sem ekki voru áður til staðar. Með nýja vefnum er m.a. fjölmiðlum auðveldað aðgengi að upplýsingum vegna umfjöllunar um ökutæki á Íslandi.
Á nýjum bifreiðatöluvef er m.a. hægt að:
- Skoða upplýsingar úr ökutækjaskrá með notendavænum og skilvirkum hætti.
- Bera saman nýskráningar ökutækja eftir orkugjöfum.
- Gera samanburð á ýmiskonar tölfræði milli ára.
- Skoða bifreiðaskráningu í bæjarfélögum.
Með nýja vefnum er hægt að fá svör við ýmsum áhugaverðum spurningum um ökutæki á Íslandi. Hvað eru margir rafmagnsbílar skráðir á Hvammstanga? Hvert er hlutfall skráðra metanbíla árið 2019 í samanburði við árið 2020? Hvaða bifreiðategund er vinsælust á Neskaupsstað? Hversu mörg hjólhýsi hafa verið nýskráð á árinu og hvaða tegund er vinsælust?