Píratar halda úti á Facebook pírataspjalli. Þar meðal annars gefinn kostur á að bera fram spurningar um stefnu Pírata.
Einn þeirra sem ber fram spurningu er Ísfirðingurinn Ólafur Bjarni Halldórsson. Hann spyr umstefnu Pírata í málefni fiskeldis.
Fyrir svörum verður Indriði Ingi Stefánsson umsjónarmaður umræðunnar. Svar hans er stutt og skýrt:
„Við sjáum ekki að sjókvíaeldi standist viðmið um sjálfbærni því erum við á móti því en við styðjum landeldi.“