Þar sem sumarið og sólin eru búin að sýna sig í vikunni og heldur vonandi áfram finnst mér þessi uppskrift sérstaklega viðeigandi.
Innihald
600 ml | vanillublanda |
50 g | kókosflögur |
350 g | frosnir ávextir, t.d. ananas, mangó og papaya |
2 stk. | bananar |
2 msk. | chia fræ |
Aðferð
- Allt sett saman í blandara og blandað vel, skipt niður í glös.
- Uppskriftin dugar fyrir fjögur stór glös eða átta lítil.
Njótið vel í sólinni sem aftur vonandi heldur áfram að glenna sig.
Halla Lúthersdóttir.