Þó vonandi verði ekki mikið um partýstand núna um Verslunarmannahelgina ætla ég að deila þessari æðislegu ídýfuuppskrift með ykkur. Þessi ídýfa er góð með öllu finnst mér.
Hráefni:
1 msk ólífuolía
1 laukur
1 rautt chili
1 rauð paprika
2 msk smátt saxað kóríander
1 poki rifinn ostur
125 g hreinn rjómaostur
450 g Cheddar ostur
1 – 2 dl rjómi (jafnvel meiri ef ykkur finnst ídýfan of þykk)
½ – 1 tsk cayenne pipar
salt og pipar
1 poki Doritos
Aðferð:
- Hitið olíu á pönnu eða í potti.
- Saxið lauk, chili og papriku smátt og
steikið upp úr olíunni í 1 – 2 mínútur eða þar til laukurinn verður glær. - Rífið niður cheddar ostinn og bætið út í pottinn ásamt öðrum hráefnum.
- Leyfið ostinum að bráðna í rólegheitum, bætið vökvanum saman við í nokkrum
pörtum. Byrjið á því að setja minna en meira. - Hrærið stöðugt í sósunni og smakkið ykkur til með salti, pipar og cayenne pipar.
- Þegar þið eruð ánægð með þykktina þá getið þið borið sósuna fram með góðu
snakki.
Verði ykkur að góðu.