Tvennir tónleikar verða um helgina í garðinum hjá Láru á þingeyri.
Hljómsveitin Hipsumhaps spilar í garðinum laugardagskvöldið 10. júl kl 20.00 og á sunnudaginn 11. júlí kl 17.00 mætir Góss í garðinn.
Þetta er í fyrsta skipti sem Góss mætir til Þingeyrar en sveitin er skipuð þeim Sigríði Thorlacius, Guðmundi Óskari og Sigurði Guðmundsyni.
Frítt er inn á báða þessa tónleika.