Ef grillið hefur ekki fokið er upplagt að prufa þessa grilluppskrift, frábært líka sem snarl eða forréttur.
Chilí og sinnepsmarineraður kjúklingur
Fyrir 3-4
900 g kjúklingur
Chilí-sinnepsmarinering
1 rautt chilí
3 hvítlauksrif
1/2 msk sætt sinnep
50 ml soyasósa
1/2 laukur (allt í lagi að sleppa)
150 ml olía (mér finnst extra virgin ólífuolía best)
4 msk púðusykur
grillspjót – lögð í bleyti
- Setjið hráefnin fyrir marineringuna í matvinnsluvél og maukið vel.
- Leggið kjúklinginn í maringeringuna og látið marinerast eins lengi og möguleiki er á helst ekki minna en 30 mínútur.
- Þræðið kjúklinginn á grillspjót og grillið þar til kjúklingurinn hefur eldast í gegn.
Verði ykkur að góðu.
Halla Lúthersdóttir.