Hamingjudagar eru bæjarhátíð Strandabyggðar og hefur verið árlegur viðburður frá 2005. Hátíðin hófst í gær og stendur fram á sunnudag.
Vonast er til að sem flestir heimamenn taki þátt í þeim viðburðum sem boðið er uppá.
Hátíðin er einnig hugsuð sem átthagamót fyrir brottflutt Strandafólk og Hólmvíkinga og vettvangur til að hittast og eiga góða stund á heimaslóð.
Dagskrá Hamingjudaga 2021
Birt með fyrir vara um breytingar og viðbætur 🙂
Miðvikurdagur 23. júní
20:00 Dagur hinna villtu blóma. Gönguferð og vöfflukaffi á Sævangi
Fimmtudagur 24. júní
17-19 Garðpartý Ozon á tjaldsvæðinu. Komdu með gleðina og þitt á grillið
17:00 Kubbmót HSS á tjaldsvæði, við ærslabelginn
20:00 Kómedíuleikhúsið og Ljóðasetur Íslands flytja dagskrá um Stein Steinarr í Steinshúsi við Ísafjarðardjúp
Föstudagur 25. júní:
10-12 Grilldagur leikskólabarna og fjölskyldna þeirra í leikskólanum Lækjarbrekku
16:00 Frumsýning stuttmynda frá stuttmyndanámskeiði LeikfélagsHólmavíkur í Félagsmiðstöðinni Ozon
17:00 Setning hátíðarinnar, afhending menningarverðlauna og sýningaropnun í Hnyðju
17-21 Sýning Rutar Bjarnadóttur opin í Hnyðju
18:00 Sjósportfélagið Rán stendur fyrir sjósundi við Stóru Grund. Öll velkomin
20:00 Brekkusöngur og almenn hamingja á Toggatúni
20:30 Toyrun bifhjólasamtökin mæta á Toggatún fyrir hönd Píeta samtakanna
18-21 Hlaðborð á Café Riis
22-00 Hamingjustuð Café Riis
Laugardagur 26. júní:
08:30 Hamingjuhlaup hefst í Þorskafirði og hlaupið er yfir Kollabúðarheiði
11:00 Leikhópurinn Lotta sýnir pínuLitlu gulu hænuna á Braggatúni
11-17 Sýning Rutar Bjarnadóttur opin í Hnyðju
11:30-14 Opið hús í Hólmadrangi og dýrindis sjávarráttarsúpa í boði, gegnið inn að aftan
12-16 Karnival á Galdratúninu – Hoppukastali, Nerf-völlur, panna, tónlist, leikir og ýmislegt fleira
12-16 Opin „hús“ og önnur mannvirki á víð og dreif
12-13:30 Tekið á móti kökum í Hnyðju
13:00 Quiddich keppni undir stjórn galdranornar á Galdratúni
14:00 Svavar Knútur spilar fyrir íbúa á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunarinnar
14:00 Hamingjuhlaðborð Galdratún
15:00 Froðurennibraut Slökkviliðs Hólmavíkur í Kirkjuhvamminum
17:00 Svavar Knútur og Aðalsteinn Ásberg flytja dagskrá um Stein Steinarr í Steinshúsi við Ísafjarðardjúp
18-21 Hlaðborð á Café Riis Café Riis
20:00 Pub quiz á Kaffi Galdri
22-00 Hamingjustuð Café Riis
Sunnudagur 27. júní:
11:00 Úti-fermingarmessa og messukaffi í kirkjugarðinum í Tröllatungu
12-14 Hamingjubrönsj á Café Riis
13:00 Polla- og pæjumót HSS í knattspyrnu á Skeljavíkurgrundum
11-15 Sýning Rutar Bjarnasóttur opin í Hnyðju
15:00 Sýningin Förufólk og flakkarar opnuð á Sauðfjársetrinu. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson segja frá
15-18 Kaffihlaðborð á Sauðfjársetrinu
20:00 Uppistand á vegum Þjóðfræðistofu í Félagsheimilinu
Annað og gott að vita:
- Krambúðin opin 09-21
- Handverksbúðin Strandakúnst opin eftir þörfum
- Íþróttamiðstöðin/sundlaugin opin 9-21
- Café Riis opið og glæsileg hlaðborð, gott að panta borð í síma 451-3567
- Sauðfjársetrið opið 10-18 og hamingjukaffi frá 15-18 á sunnudeginum
- Galdrasafnið og Restaurant Galdur opið 10-18
- Gistihús Hólmavíkur – kaffihúsið opið kl.14-18 og frameftir eftir stemmningu
- Bistro 510 á tjaldsvæðinu opið 13-22
- Golfvöllurinn opinn og bíður eftir þér
- Salernisaðstaða opin á hafnarvoginni frá kl. 12-19 á laugardeginum
- Sýning á listaverkum leikskólabarna í Íþróttamiðstöðinni á opnunartíma
Við minnum gesti og íbúa á ráðleggingar sóttvarnarlæknis v. Covid 19
- Virðum fjarlægðarmörk
- Sótthreinsum hendur og gætum hreinlætis
- Hámarksfjöldi á samkomum eru 300 manns
Við erum öll almannavarnir!